Stjornufraedi.is
Mistral WP6 Verð frá kr.: fyrirspurn |
Fyrir fuglaskoðun |
Zenith Scholaris-400 |
|
|
Velkomin(n) á Sjónaukar.is!
Sjónaukar.is sérhæfir sig í sölu á sjónaukum og tengdum fylgihlutum. Við leggjum okkur fram við að upplýsa þig af þekkingu og er þér velkomið að senda inn fyrirspurnir á netfangið sjónaukar[hjá]sjónaukar.is. Einnig er hægt að hafa samband við söluaðila okkar um land allt.
Við reynum að höfða til allra með því að bjóða upp á fjölbreytt úr sjónauka, hvort sem um er að ræða handsjónauka, fugla- og útsýnissjónauka eða stjörnusjónauka. Við bjóðum upp á heimsþekkt vörumerki og vörur í öllum gæðaflokkum. Við eigum bein viðskipti við birga okkar milliliðalaust og getum þar af leiðandi boðið samkeppnishæft verð. Til þess að halda vöruverði niðri liggjum við ekki með mikið magn af vörum á lager. Í sumum tilvikum þarf þar af leiðandi að sérpanta vöruna og getur það tekið tvær til þrjár vikur að fá vöruna afhenta.
Athugið! Vegna tíðra gengisbreytinga eru verð almennt ekki birt á vefnum. Þau verð sem hér birtast eru sett fram með fyrirvara.
Vandaðir sjónaukar frá Sjónaukar.is
Merkin okkar
Við bjóðum upp á hágæða sjónauka og fylgihluti frá William Optics, Orion og Celestron, í öllum verðflokkum.
William Optics | Celestron | Orion |
SkyWatcher | Bob's Knobs |
Acuter |
Hollráð fyrir val á stjörnusjónauka
Við viljum að þú eignist sjónauka sem er hentar þér og þínum þörfum sem best. Þess vegna er gott að hafa eftirfarandi hollráð í huga:
1. Ljósopið skiptir mestu máli í stjörnuskoðun - Ef þú ætlar aðeins að nota sjónaukann í stjörnuskoðun skiptir mestu máli að ljósopið sé sem stærst. Fjárfestu í eins stórum stjörnusjónauka og þú ræður við.
2. Sjónaukinn þarf að vera einfaldur í notkun - Það er lítið vit í að eignast sjónauka sem er svo flókinn í notkun að maður nennir ekki að nota hann. Þess vegna mælum við með því að þú eignist sjónauka sem er bæði meðfærilegur og einfaldur í notkun.
3. Fylgihlutir skipta miklu máli - Þótt flestum sjónaukum fylgi allt sem þarf til þess að hefja stjörnuskoðun er mikilvægt að eignast góða fylgihluti. Góðir fylgihlutir gera nefnilega góðan stjörnusjónauka enn betri. Fjárfestu í það minnsta í einu augngleri til viðbótar við þau sem fylgdu sjónaukanum.
4. Ekki velta stjörnuljósmyndun fyrir þér... strax - Marga dreymir um að taka stjörnuljósmyndir með nýja sjónaukanum sínum sem er auðvitað bara eðlilegt. Við mælum aftur á móti með að þú lærir fyrst á stjörnuhiminninn með sjónaukanum þínum áður en þú ræðst í stjörnuljósmyndun og notir hann til þess að sýna þér öll þau stórkostlegu fyrirbæri sem himinninn hefur upp á að bjóða. Það sakar þó auðvitað aldrei að reyna.
5. Skráðu þig á námskeið Stjörnuskoðunarfélagsins og Stjörnufræðivefsins - Gagnlegasta aðferðin til að læra á stjörnusjónaukann þinn er að skrá sig á námskeið sem Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn standa fyrir á haustinn og eftir jól ár hvert. Á námskeiðinu er farið í öll helstu atriði í sambandi við stjörnusjónauka og stjörnuskoðun og gefst fólki kostur á að læra á eigin búnað. Námskeiðin eru vægast sagt mjög gagnleg og þar gefst þér kostur á að komast í samband við reynda stjörnuáhugamenn sem geta leiðbeint þér eins og kostur er.