Stjornufraedi.is
SkyWatcher Skyliner 250P - 10" Dobsonsjónauki
Verð kr.: 149.900,- Panta |
Hreint út sagt frábær stjörnusjónauki fyrir byrjendur og lengra komna en sér í lagi unga stjörnuáhugamenn. Sjónaukinn er sáraeinfaldur í notkun og ótrúlega meðfærilegur þrátt fyrir að hafa 10 tommu ljósop. Þetta er einfaldlega einn allra besti byrjandasjónaukinn sem völ er á, sérstaklega þegar mið er tekið af verðinu.
Með þessum frábæra byrjandasjónauka sérðu bjartar og skarpar myndir af tunglinu og reikistjörnunum. Auðvelt er að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og stórbrotið hringakerfi Satúrnusar og fín smáatriði á Mars á borð við pólhettur, ský og dökk- og ljósleit svæði og jafnvel sjálft Ólympusfjall!
Djúpfyrirbæri eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir sjást sérstaklega vel með þessum sjónauka þar sem hann hefur nokkuð stórt ljósop.
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn mæla sérstaklega með þessum frábæra byrjandasjónauka.
- Tegund: Dobson spegilsjónauki
- Ljósop: 10 tommur
- Brennivídd: 1400mm
- Brennihlutfall: f/5,9
- Birtumörk: +14,2
- Mesta gagnlega stækkun: 350x
- Safnar 120% meira ljósi en 6 tommu sjónauki
- Stjörnuljósmyndun: Nei, nema aðeins einföld tunglmyndataka
Hvað fylgir með?
- Allt sem sést á myndinni
- 10mm og 25mm Super Plössl (gefa 48x og 120x stækkun)
- 9x50 leitarsjónauki
- Þriggja ára ábyrgð
Þarf ég eitthvað fleira?
Við mælum alltaf með því að fólk eignist góða fylgihluti fyrir sjónaukann sinn. Hér eru nokkrir sem við mælum með:
Augngler og aðrir fylgihlutir
- 32mm augngler (38x stækkun)
- 15mm augngler (80x stækkun)
- 12,5mm augngler (96x stækkun)
- 7,5mm augngler (160x stækkun)
- 6mm augngler (200x stækkun)
- Tunglsía