Stjornufraedi.is
Merlin
Verð: 44.990.- |
Merlin lóðstillta sjónaukastæðið er einfalt, stöðugt og samtímis afar meðfærilegt. Auðvelt er að festa þrífót undir og nýta drifið í ýmsa stjörnuljósmyndun. Stæðið ber allt að 4 kg. Tengja má myndavél, stjörnusjónauka eða myndbandstökuvél við það. Með fjarstýringunni má beina sjónaukanum eða myndavélinni hvert sem er á næturhimininn og láta drifið fylgja hreyfingu stjarna! Tölvubúnaðurinn geymir í minni 42.900 stjarnfyrirbæri. Merlin lóðstillta sjónaukastæðið hentar því stjörnuáhugafólki bæði með mikla eða litla reynslu af stjörnuskoðun.
Upplýsingar
- Ein arma lóðstillt sjónaukastæði
- Handstýring og rafmagnsdrif
- Staðsetningaminni
- Þrífótarfesting
- Fjölhraðadrif (1., 4. og 8. faldur hraði stjörnutíma)
- Ber allt að 4 kg þyngd
- Létt og meðfærilegt