Stjornufraedi.is
FLT 158 Triplet APO
Verð kr.: Hafðu samband fyrir besta verð. |
FLT 158 Triplet APO er án nokkurs vafa einn allra vandaðasti linsusjónaukinn á markaðnum í sínum stærðarflokki. Í honum eru þrjár lithreinar (APO) LZOS OK-4 linsur frá Rússlandi, sérhannaðar fyrir William Optics. Þessar frábæru linsur skila kristaltærri, hnífskarpri og bjartri mynd án nokkurrar bjögunar. Sjónaukinn er fullkomlega lithreinn sem tryggir bestu mögulegu útkomu í stjörnuljósmyndun.
Fókusinn er geysisterkur og sígur ekki þrátt fyrir að þungum myndavélum sé komið fyrir á hann, en er um leið alltaf silkimjúkur. Fókusnum er hægt að snúa 360 gráður og hefur auk þess 1:10 fínfókushnapp fyrir hárfína fókusstillingu sem er vitaskuld nauðsynleg í stjörnuljósmyndun.
- Linsur: LZOS OK-4 linsur
- Ljósop: 158mm
- Brennivídd: 1121mm
- Brennihlutfall: f/7
- Lengd: 990mm
- Þyngd: 15 kg
Hvað er innifalið í verði?
- Festihringir
- Burðartaska
- Fimm ára ábyrgð
Þarf ég eitthvað fleira?
Losmandy G11 þýskt sjónaukastæði Rafdrifið þýskt sjónaukastæði sem hægt er að tengja við tölvu er nauðsynlegt ef taka á góðar stjörnuljósmyndir með FLT 132 Triplet APO. G11 þýska sjónaukastæðið frá Losmandy er meðal bestu sjónaukastæða sem völ er á í sínum verðflokki. Sjá nánar. | |
William Optics 2" Dielectric skáspegill Tveggja tommu skáspegill með 99% endurvarpi skilar bjartri og skarpri mynd úr sjónaukanum upp í augnglerið. Sjá nánar. | |
William Optics UWAN augngler Hágæða augngler með 82° sýndarsjónsviði og hnífskarpri mynd. Sjá nánar. | |
Myndir
Stjörnuljósmyndir teknar með FLT 158 Triplet APO