![]() |
Verð kr.: Hafðu samband fyrir besta verð |
UWAN gleiðlinsurnar eru vönduðust augnglerin frá William Optics og einnig ein vönduðustu augnglerin sem völ er á. Þetta frábæra augngler er sérstaklega fyrir eigendur linsusjónauka og Schmidt-Cassegrain sjónauka sem eiga tveggja tommu skáspegil. Augnglerið gefur litla stækkun en mjög vítt sjónsvið (82°) og er því kjörið til að skoða víð fyrirbæri á borð við stjörnuþokur, lausþyrpingar og jafnvel vetrarbrautir.