Stjornufraedi.is
NexStar 130 SLT
Verð kr.: 84.900,- (Til á lager) |
Með sjónaukanum fylgir lítil fjarstýring sem tengd er við sjónaukann og sér um að finna fyrirbærin með þinni hjálp. Með því að smella á einn hnapp getur þú valið um fyrirbæri á himninum, skoðað upplýsingar um fyrirbæri eða einfaldlega komist að því hvort fyrirbæri sé sýnilegt á himninum yfir Íslandi eða ekki.
SkyAlign tæknin auðveldar mjög stjörnuskoðunina. Með því að slá inn dagsetningu, tíma og staðsetningu (lengdar- og breiddargráðu þína) í fjarstýringuna, beinist sjónaukinn að þremur björtum fyrirbærum á himninum. Þú þarft ekkert endilega að þekkja nöfn þeirra – þú getur jafnvel valið tunglið eða bjartar reikistjörnur.
SkyAlign er einfaldasta aðferðin til að stilla tölvustýrðan sjónauka; hún er frábær fyrir byrjendur því hún er bæði þægileg og nákvæm, eins og reyndari notendur krefjast.
NexStar 130 SLT er eingöngu hugsaður í stjörnuskoðun.
Með þessum fína sjónauka sérðu bjartar og skarpar myndir af tunglinu og reikistjörnunum. Auðvelt er að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og stórbrotið hringakerfi Satúrnusar. Ef þú vilt skoða djúpfyrirbæri eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir mælum við frekar með stærri spegilsjónaukum, svo sem NexStar 130 SLT. Bestu kostirnir eru SkyQuest XT6 eða 8 sem fá okkur mestu meðmæli.
- Tegund: Spegilsjónauki
- Stæði: Hálft gaffalsstæði (fork mount)
- Ljósop: 130mm
- Brennivídd: 650mm
- Brennihlutfall: f/5
- Mesta gagnlega stækkun: 280x
- Fugla- og útsýnisskoðun: Nei
- Stjörnuljósmyndun: Aðeins einfaldar ljósmyndir af tunglinu
Hvað fylgir með í pakkanum?
- Allt sem þú sérð á myndinni, það er
- Þrífótur
- 25mm augngler (26x stækkun)
- 9mm augngler (72x stækkun)
- Miðari
- Tveggja ára ábyrgð
Þarf ég eitthvað fleira?
Mjög mikilvægt er að eignast góða fylgihluti með NexStar 130 SLT til að fá sem mest út úr sjónaukanum. Góðir fylgihlutir gera nefnilega góðan sjónauka enn betri og stjörnuskoðunina ánægjulegri.
Hér eru nokkrir fylgihlutir sem við mælum sérstaklega með fyrir NexStar 130 SLT.