Skyliner-250PX

Athugaðu, opna í nýjum glugga. Skoða sem PDF skjalPrenta útSenda hlekk á þessa síðu til vinar

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Frábær stjörnusjónauki fyrir byrjendur og lengra komna sem hugsa stórt! Sjónaukinn er sáraeinfaldur í notkun en nokkuð umfangsmikill en engu að síður nokkuð meðfærilegur. Erfitt er að finna jafn stóran sjónauka sem sýnir manni jafn margt á himinhvolfinu á betra verði! Þetta er einfaldlega einn allra besti stóri byrjandasjónaukinn sem völ er á, sérstaklega þegar mið er tekið af verðinu.
Með sjónaukanum fylgir IntelliScope tölvustýring sem hjálpar þér við að staðsetja þúsundir fyrirbæra á himninum handvirkt. IntelliScope er sáraeinfalt í notkun en leiðbeiningar um notkun þess er að finna hér. 
Með þessum frábæra sjónauka sérðu bjartar og skarpar myndir af tunglinu og reikistjörnunum. Sáraeinfalt er að sjá tungl og skýjabelti Júpíters og stórbrotið hringakerfi og nokkur tungl Satúrnusar, Úranus og nokkur tungl hans og mjög fín smáatriði á Mars á borð við pólhettur, ský og dökk- og ljósleit svæði og jafnvel sjálft Ólympusfjall!
Djúpfyrirbæri eins og stjörnuþokur, stjörnuþyrpingar og vetrarbrautir sjást einstaklega vel með þessum sjónauka þar sem hann hefur stórt ljósop. Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness og Stjörnufræðivefurinn mæla sérstaklega með þessum frábæra sjónauka.

  • Tegund: Dobson spegilsjónauki
  • Ljósop: 10 tommur (254mm)
  • Brennivídd: 1200mm
  • Brennihlutfall: f/4,7
  • Birtumörk: +14,7
  • Mesta gagnlega stækkun: 400x
  • Stjörnuljósmyndun: Nei, nema aðeins einföld tunglmyndataka

Hvað fylgir með?

  • Allt sem sést á myndinni
  • 25mm Sirius Plössl augngler (48x stækkun)
  • 10mm Sirius Plössl augngler (120x stækkun)
  • 9x50 leitarsjónauki
  • Tveggja ára ábyrgð


 

Þarf ég eitthvað fleira?
Gagnlegir fylgihlutir. Hafðu samband ef þú vilt fá hjálp við valið.

Augngler
Augngler eru langmikilvægustu fylgihlutir stjörnusjónauka. Þau ráða bæði stækkun og sjónsviði hans og það hvort myndin lítur vel út eða ekki. Við mælum með 32mm Sirius Plössl augngleri eða 24mm Orion Stratus augngleri fyrir SkyQuest XT10. Bæði hafa eins vítt sjónsvið og unnt er í 1,25 tommu augnglerjum en hið fyrrnefnda gefur 38x stækkun en það síðarnefnda 50x stækkun. Auk þess mælum við með að minnsta kosti einu í viðbót, til dæmis 12,5mm (96x) og 2x Barlow-linsu sem tvöfaldar stækkun hvers augnglers.
Sjá nánar

Tungl- og sólarsía
Síur geta reynst mjög gagnlegar í stjörnuskoðun. Tunglsía er mjög gagnleg til að skoða tunglið þar sem hún dregur úr birtu þess. Ljósmengunarsía og aðrar þokusíur gagnast til að skoða djúpfyrirbæri úr ljósmengun. Einnig er hægt að fá litsíur til að skoða reikistjörnurnar og sólarsíu til að skoða sólina á öruggan hátt. Við mælum fyrst og síðast með tunglsíu og sólarsíu.
Sjá nánar

Starry Night Enthusiast hugbúnaðurinn
Starry Night hugbúnaðurinn er einn allra besti stjörnufræðihugbúnaður sem völ er á. Með honum er hægt að skipuleggja stjörnuskoðun fram í tímann og prenta út eigin stjörnukort. Hugbúnaðurinn er MJÖG gagnlegur fyrir alla stjörnuáhugamenn.
Sjá nánar

Burðartaska
Hægt er að mjúka en mjög sterka og góða burðartösku fyrir alla SkyQuest Dobsonsjónaukana frá Orion. Þannig er auðvelt að verja sjónaukann fyrir hvers kyns hnjaski og flytja hann milli staða.